HeyHey we´re the Monkeys... !!
Núna er þolinmæði mín sem handrits og pistla höfundur búin og hef ég ákveðið að svíkja kollega mína vestanhafs og hætta í þessu kjánalega verkfalli...!!
Okay enn og aftur kallar þessi síða á mig þegar ég fæ gjörsamlega nóg af öllu ruglinu sem á sér stað í þessum heimi okkar.. Ætla byrja hérna á einni snilldarfrétt sem ég var að lesa...
Þannig er mál með vexti að það var einhver ítalskur meistari, Martino Garibaldi, sem var greinilega svona líka ekki sáttur við hversdagslífið og tók allan peninginn sinn, greip hjákonuna sína og lét sig hverfa frá konu sinni og börnum.. Alveg í toppmálum, skildi familíuna bara eftir á brókinni... Og bara þú veist líf og fjör og svona , ekkert spyrst til mannsins, einkaspæjari og vegum konunnar veit ekki neitt og svona skemmtilegheit,, en þá gerist ábyggilega það ólíklegasta sem gæti mögulega gerst.. Einhver annar meistari ákvað að búa til kvikmynd í Dóminíska Lýðveldinu og viti menn, vinur fyrrum hjónanna var að horfa á þessa æðislegu mynd og hver er þá mættur eins og kallaður... Labbar í bakgrunninum og hefur ekki hugmynd um að sé verið að búa til bíómynd ,, Martino og hjákonan bara hress í sólbaðsfötunum og læti.. Og fyrrverandi kéllan hans nottla bara verður snargeðveik og fer til Dóminíska og finnur manninn og ætlar sko að fá peninginn til baka.. Hey hversu lítill er þessi heimur maður??
Og svo hvað er að frétta með allar þessar skotárásir,, það er annarhver maður í þessum blessaða heimi sem snappar útaf einhverri ástæðu og byrjar að drita á mann og annann.. Þetta er orðið jafnalgengt í Bandaríkjunum eins og að fara í bíó... Maður þarf kannski að fara passa sig þegar maður gengur um ganga FS, næsti maður gæti tekið upp haglarann , sagst hata lífið og svo bara byrjað að drita.. Ansi vafasamt..
En svo ég hætti nú þessari neikvæðni þá er nú bara flest allt annað í toppmálum. Samt sem áður er nú lífið alveg svona skemmtilega alveg eins alltaf.. Bara skóli , æfingar og chill.. Blix komið í 14-0 og allt í besta lagi þar á bæ og þurfum við nú að taka af okkur hausinn ef við ætlum að klúðra þessu.. Ég verð að viðurkenna það að ég er farinn að horfa mjög svo hlýjum augum til sumarsins, hversu mögnuð byrjun verður það að fara í Útskriftarferð til Marmaris með hrikalega vafasömum fylgisveinum.. Já það verður eitthvað sem vert verður að taka upp á myndband..
Hrós Dagsins: Madonna, fyrir að vera hreinskilin og segjast vilja vera Sígauni.. Hver vill það ekki? haha.. Og einnig Davíð Oddson fyrir meistaraviðtal á dögunum ,, Hvað finnst þér um stöðuna hjá Huddersfield?,,
Last Dagsins: Það eru 2 algjörir sigurvegarar hér, Liverpool liðið sem er eitt lélegasta lið sem ég hef séð spila knattspyrnu miðað við launaskrá... Jenni byrjaðu að halda með Barnsley.. Og svo fær Gaupi einnig last fyrir að þurfa tala stanslaust í korter eftir leik Liverpool og Barnsley um hversu æðislegt allt sé og þetta hafi verið svo svaaaakalegt og blabla..
´
Múv Dagsins: Lindsay Lohan fyrir að vera full alla daga vikunnar og reyna við alla gaurana í Hollywood þó að hún sé nýkominn úr sinni 3. meðferð. Gott með þig vinan.
Lag Dagsins: Far More með hljómsveitinni The Honorary Title. www.myspace.com/muggurinn til að heyra lagið..
Mynd Dagsins:

Þetta er fyrirmyndar mamma..
Jæja Líf og Fjör.. Muggurinn # 9















